Orkugangan 2018

Orkugangan 2018

 

Orkugangan 2018 verður haldin laugardaginn 14. apríl.
Boðið verður upp á þrjár vegalengdir 25 km ganga með hefðbundinni og frjálsri aðferð ásamt 10 km göngu með hefðbundinni aðferð og 2,5 km göngu fyrir yngstu iðkendur og byrjendur.

Rásmark Orkugöngunnar er við Þeistareyki, rásmark 10 km suðaustan við Höskuldsvatn og 2,5 km gangan er gengin á svæði gönguskíðafólks á Reykjaheiði.

Orkugangan gefur stig til Íslandsgöngu Skíðasambandsins. Boðið er upp á frjálsa aðferð í 25 km göngunni en í 10 km og 2,5 km göngunum er gengið með hefðbundnum hætti.

Dagskrá Orkugöngunnar;

Laugardagur 14. apríl:
09:00 – afhending mótsgagna hefst á svæði skíðagöngudeildar á Reykjaheiði.
09:45 – Rúta leggur af stað frá svæði gönguskíðafólks að rásmarki í 25 og 10 km göngum. Rútan er innifalin í skráningargjaldi..

Rástímar:
25 km: kl. 11:00
10 km: kl. 11:00
2,5 km fyrir 12 ára og yngri kl. 11:00
Verðlaunaafhending og kjötsúpa í salnum hjá Dvalarheimilinu Hvammi á Húsavík frá kl. 14:00 – 15:00.
Athugið opið í Sundlaug Húsavíkur til kl. 18:00

Skráningargjald:
25 km ganga – 5.000 kr
10 km ganga – 3.000 kr
2,5 km ganga – ókeypis

Skráning er opin fram að göngu. Hinsvegar óska starfsmenn göngunnar eftir að flestir skrái sig í gegnum netfangið gummif90@gmail.com til að einfalda alla vinnslu í kringum gönguna.

Aldursflokkar:
25 km: 16-34 ára, 35-49 ára, 50- 59 ára og 60 ára og eldri hjá hvoru kyni
10 km og 2,5 km : Einn opinn flokkur hjá hvoru kyni
Flug:
Flugfélagið Ernir flýgur milli Reykjavíkur og Húsavíkur alla daga.
Sjá áætlun á www.ernir.is