Orkugangan og Buchgangan laugardaginn 11. apríl

Nú er komið að einni stærstu göngunni í Íslandsgöngunum svokölluðu, mótaröð Skíðasambandsins. Gangan er lengsta skíðaganga á Íslandi og náttúrufegurðin einstök á leiðinni, hverabólstrar frá Þeystarreykjum og blámóða Kinnarfjalla og Skjálfanda þegar nálgast Húsavík.

Gangan er um 60 kílómetrar og líkist Vasagöngunni í Svíþjóð að því leyti að frekar hallar undan og gönguleiðin því tiltölulega auðveld fyrir heilsugott fólk. Orkugangan 2015 verður laugardaginn 11. apríl en hún er haldin af skíðadeild Völsungs með tilstyrk Landsvirkjunar. Auk 60 km göngu verður boðið upp á styttri vegalengdir í  Buch skíðagöngunni, 25 km, 10 km og 1 km. Orkugangan gefur stig til Íslandsgöngu Skíðasambandsins.

Allar vegalengdir eru gengnar með hefðbundinni aðferð. Rásmark Orkugöngunnar er við Kröflu, rásmark 25 km er við Þeistareyki, rásmark 10 km suðaustan við Höskuldsvatn og 1 km gangan er gengin á svæði gönguskíðafólks á Reykjaheiði.,

Hægt er að skrá sig í göngurnar hér á heimasíðunni, þar má einnig finna allar helstu upplýsingar. Allir sem hafa áhuga eru hvattir til að skrá sig, en eins og komið hefur fram má finna vegalengs vil allra hæfi.